All Categories
    Filters
    Preferences
    Search

    Conditions of Use

    Söluaðili: KH Vinnuföt, Nethyl 2a, 110 Reykjavík, sími 577-1000, info@khvinnufot.is

    KH Vinnuföt áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir með símtali.

    Söluveð: Seljandi heldur söluveð í seldri vöru þar til að kaupverð vörunnar hefur verið að fullu greitt. Víxlar, skuldabréf, ávísun eða reikningsviðskipti afnema ekki eignarétt, þar til skuld hefur verið að fullu greidd.

    Afhendingar: Pantanir eru afgreiddar innan 3 daga frá pöntun. Sé vara ekki til mun starfsmaður hafa samband við kaupanda og tilkynna áætlaðan afhendingartíma vörunnar.

    Verð og sendingarkostnaður: Öll verð í vefverslun eru tilgreind með virðisaukaskatti. Öll verð og upplýsingar eru birt með fyrirvara um prentvillur og áskilur KH Vinnuföt ehf sér allan rétt til verðbreytinga án fyrirvara. Vara er alltaf send á ábyrgð og kostnað kaupanda nema samið hafi verið sérstaklega um annað. Þeim pöntunum sem er dreift af flutningsaðilum gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar þeirra fyrirtækja um afhendingu vörunnar. Sé pöntuð vara ekki sótt áskilur seljandi sér rétt til að senda vöru til kaupanda á hans kostnað. Vara er eign söluaðila þar til hún hefur verið að fullu greidd. Hafi kaupandi athugasemd skal hún berast innan 15 daga frá dagsetningu reiknings.

    Vöruskil og skilafrestur : Kaupandi hefur 30 daga til að hætta við kaup á vöru að því tilskildu að kaupandi hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í söluhæfum, óuppteknum og upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Kaupandi þarf að framvísa sölureikning sem sýnir hvenær varan var keypt. Við skil á vöru er ekki um endurgreiðslu að ræða heldur fær kaupandi inneignarnótu fyrir andvirði vörunnar sem gildir í eitt ár frá útgáfudegi. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

    Vörugalli: Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðir KH Vinnuföt allan sendingarkostnað sem um ræðir eða endurgreiðir ef þess er krafist.

    Trúnaður: Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

    Lög og varnarþing: Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.