Tveir brjóstvasar sem bæði er hægt að hafa lausa að neðan og eins er hægt að festa þá með smellum. Undir báðum brjóstvösunum eru stórir vasar sem ná út undir handveg og eru þeir lokaðir með rennilásum.
Undir brjóstvösunum eru litlir hangandi vasar fyrir bita og er annar vasinn lokaður með rennilás.Hangandi tvöfaldir vasar að framan styrktir með Cordura efni, aftari vasinn er heill en að framan eru minni vasar fyrir fyrir verkfæri.
Vasi fyrir starfsmannakort er undir hangandi vasanum hægra megin.
Þrír hangandi vasar að aftan styrktir með Cordura efni og miðvasinn er tvískiptur.
Vestin eru þykkari á öxlum og á hliðunum eru lykkjur báðum megin ásamt lykkjum fyrir hamarshöldur.
Belti fylgir með vestunum.
Hægt er að víkka vestið um sjö sentimetra með auka stykki sem er rennt inn í vestið að framanverðu og þannig að auðvelt er að víkka vestið yfir kuldafatnað.